Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

SÖNGUR 10

Lofum Jehóva

Lofum Jehóva

(Sálmur 145:12)

  1. 1. Lofum Jah! Lofum Jehóva!

    Kynnum jarðarbyggð nafnið hans.

    Vörum við, nálgast dagur dóms,

    boðum dag hvern bjargráð skaparans.

    Að frumburður Drottins fékk konungsvald

    til að fara með völd jörð á.

    Lát boðin út ganga, berum út frétt

    um þá blessun sem fólk mun fá.

    (VIÐLAG)

    Lofum Jah! Lofum Jehóva!

    Kynnum jarðarbúum veldi hans.

  2. 2. Lofum Guð, syngjum gleðisöng.

    Nafn hans göfgi þeir sem hann dá.

    Knúin þrá, hjartans þakklæti,

    heimsins þrælkun leysum fólkið frá.

    Þótt Guð mikill sé og göfug hans tign

    hann samt góður og hógvær er.

    Hann auðsýnir miskunn, aðstæður sér,

    heyrir áköll frá mér og þér.

    (VIÐLAG)

    Lofum Jah! Lofum Jehóva!

    Kynnum jarðarbúum veldi hans.