Hoppa beint í efnið

Meðferð persónuupplýsinga í söfnuði Votta Jehóva um allan heim

Meðferð persónuupplýsinga í söfnuði Votta Jehóva um allan heim

Við söfnum, geymum og notum persónuupplýsingar þínar aðeins í samræmi við tilganginn með því að þú lést þær í té og geymum þær aðeins eins lengi og þarf til að uppfylla þann tilgang eða viðeigandi skilyrði. Ef þú kýst að veita okkur ekki allar upplýsingar sem við biðjum um má vera að þú getir ekki nýtt þér öll svæði vefsetursins eða tengdra forrita sem Watchtower Bible and Tract Society of New York, Inc. lætur í té og að við getum ekki brugðist við beiðni þinni.

Upplýsingarnar sem þú lætur okkur í té með beiðni þinni eða umsókn eru aðgengilegar þeim sem er falið að vinna þær í samræmi við tilgang þeirra og/eða sérfræðingum í tæknilegri aðstoð sem veita þjónustu tengda beiðninni eða umsókninni og sinna tæknilegu viðhaldi. Við látum engum öðrum upplýsingar þínar í té nema (1) þú hafir fengið fulla vitneskju um það og það sé nauðsynlegt til að veita þér þá þjónustu sem þú baðst um, (2) við höfum gilda ástæðu til að ætla að miðlun slíkra upplýsinga sé nauðsynleg til að uppfylla lagaleg skilyrði, (3) til að bregðast við beiðni frá yfirvöldum eða (4) það sé nauðsynlegt til að uppgötva og koma í veg fyrir svindl eða af öryggis- eða tæknilegum ástæðum. Með því að nota þetta vefsetur samþykkir þú um leið að við látum þriðju aðilum í té persónuupplýsingar af ástæðum sem er lýst hér að ofan. Undir engum kringumstæðum seljum við, leigjum eða verslum með persónuupplýsingar sem þú lætur okkur í té.

MEÐFERÐ PERSÓNUUPPLÝSINGA Á VEFSETRINU

Nálgast má meirihluta efnisins á þessu vefsetri án þess að notandinn skrái sig eða láti okkur í té nokkrar upplýsingar. Sum svæði eru þó aðeins aðgengileg notendum sem hafa skráð sig inn, senda inn beiðnir eða umsóknir eða notendum sem fá söfnuð Votta Jehóva til að senda inn persónuupplýsingar á jw.org. Við vinnum þessar upplýsingar aðeins með þínu samþykki. Ef þú dregur samþykki þitt til baka höldum við í sumum tilfellum áfram að vinna úr gögnum þínum, þó aðeins í samræmi við lagalegar kröfur.

Persónuupplýsingar, sem þú lætur í té á vefsetrinu, eru aðeins notaðar í þeim tilgangi sem er kynntur fyrir þér þegar þú lætur þær í té. Þær geta meðal annars verið notaðar í eftirfarandi tilgangi:

Notandareikningur. Netfangið, sem þú lætur í té þegar þú stofnar reikning á þessu vefsetri, er notað til að hafa samband við þig varðandi reikninginn. Ef þú gleymir til dæmis notandanafni þínu eða aðgangsorði og biður um aðstoð við að skrá þig inn notum við til þess netfangið sem þú skráðir í kenniskrá þína.

Kenniskrá mín. Þegar þú hefur stofnað reikning getur ritari safnaðar þíns gefið þér aðgang að kenniskrá þinni. Ef þú vilt bæta einhverjum persónuupplýsingum við kenniskrána á hub.ps8318.com verður þú spurður hvort þú samþykkir að nota megi viðbótarupplýsingarnar, ef svo ber undir, til að benda á þig fyrir fleiri þjónustuverkefni og hafa samband við þig þar að lútandi. Ef þú ert að aðstoða við eitthvert verkefni og þú bætir við upplýsingum um frekari færni sem þú býrð yfir kann að vera að matsmaður meti færni þína til að sinna því verkefni. Til að vinna úr upplýsingunum frá þér má deila þeim, ef þörf krefur, með annarri deildarskrifstofu Votta Jehóva, aðalstöðvum Votta Jehóva eða sambærilegum aðilum sem Vottar Jehóva nota í ýmsum löndum.

Umsóknir. Ef þú telst hæfur samkvæmt trúarskoðunum og stefnu Votta Jehóva geturðu notað vefsetrið til að stofna reikning og til að senda inn umsóknir. Söfnuðurinn sem þú tilheyrir getur líka notað vefsetrið til að senda inn slíka umsókn fyrir þína hönd. Í hverri umsókn kemur fram hver er tilgangur hennar, eins og til dæmis að sækja um aukna trúarlega þjónustu eða óska eftir eða bjóða fram gistingu í tengslum við umdæmismót, svæðismót eða aðra viðburði. Persónugögn á umsókninni geta verið upplýsingar sem þú, safnaðaröldungarnir eða farandhirðirinn hefur látið í té. Upplýsingarnar eru aðeins notaðar við vinnslu og skoðun umsóknarinnar og af tengdum skipulagsástæðum, þar á meðal til að stofna reikning fyrir þig í þeim tilgangi að vinna úr umsókninni. Upplýsingar á umsókninni geta verið sendar til annarra deildarskrifstofa Votta Jehóva, aðalstöðva þeirra eða tengdra félaga sem Vottar Jehóva nota í ýmsum löndum ef það er nauðsynlegt til að geta unnið úr henni. Ákvarðanir varðandi umsóknir eru ekki staðlaðar heldur eru allar umsóknir skoðaðar á eigin forsendum hver fyrir sig.

Sérmót og alþjóðamót. Ef þú telst hæfur til að sækja sérmót eða alþjóðamót („mót“) geturðu notað þetta vefsetur til að senda inn umsókn. Nánari upplýsingar sem eiga við um allar umsóknir er að finna undir yfirskriftinni „Umsóknir“ hér að ofan.

Sérstakir gestir. Þær persónuupplýsingar sem krafist er fyrir mótið fela í sér samskiptaupplýsingar þínar, fæðingardag, upplýsingar um hópinn þinn, gististað þinn, komu og brottför og hverjar þær upplýsingar sem þú lætur í té og varða mótið. Ef þú ert valinn sem sérstakur gestur verður persónuupplýsingum þínum komið á framfæri við þá deildarskrifstofu Votta Jehóva sem hefur umsjón með mótinu og hún mun nota þær. Þeir sem eru í mótsnefndinni og gestgjafanefndinni eða koma að beinu samstarfi við þær hafa aðgang að þessum upplýsingunum. Þeir munu nota persónuupplýsingar þínar við skipulagningu mótsins, til að halda utan um ferðir þínar og þarfir í tengslum við þær, svo og til að skipuleggja viðburði og afþreyingu í sambandi við mótið. Persónuupplýsingum þínum verður líka komið á framfæri við hótelið sem þú velur þér, aðila tengda því og þriðju aðila til að hægt sé að vinna úr bókun þinni og öðru tengdu dvöl þinni á hótelinu. Persónuupplýsingum þínum verður líka komið á framfæri við þriðju aðila sem sjá fyrir þjónustu í sambandi við þá viðburði eða afþreyingu sem þú velur þér. Ef þú kýst að gefa ekki upp persónuupplýsingar eða ferð fram á að þeim sé eytt getur verið að þú teljist ekki lengur hæfur til að vera sérstakur gestur á mótinu. Persónuupplýsingum þínum verður eytt um leið og þeirra er ekki lengur þörf.

Sérstakt boðunarátak. Ef þú telst hæfur til þátttöku í sérstöku boðunarátaki („átak“) geturðu notað þetta vefsetur til að senda inn umsókn. Nánari upplýsingar sem eiga við um allar umsóknir er að finna undir yfirskriftinni „Umsóknir“ hér að ofan. Ef þú ert valinn til að taka þátt í átakinu verður persónuupplýsingum þínum komið á framfæri við þá deildarskrifstofu Votta Jehóva sem hefur umsjón með átakinu og hún mun nota þær. Þær persónuupplýsingar sem krafist er fyrir átakið fela í sér samskiptaupplýsingar þínar, upplýsingar um hópinn þinn, gististað þinn, komu og brottför, tungumálakunnáttu þína og hverjar þær upplýsingar sem þú lætur í té og varða átakið. Nefndin sem sér um boðunarátakið á vegum deildarskrifstofunnar mun nota persónuupplýsingar þínar við skipulagningu átaksins, upplýsa þig um svæði og skipuleggja gistingu. Tengiliður þinn á svæðinu og öldungar móttökusafnaðarins munu nota persónuupplýsingar þínar við skipulagningu átaksins á svæðinu. Ef þú kýst að gefa ekki upp persónuupplýsingar eða ferð fram á að þeim sé eytt getur verið að þú teljist ekki lengur hæfur til þátttöku í átakinu.

Kennsla og þjálfun. Ef þú ert hæfur til að aðstoða við ákveðin verkefni, þar á meðal byggingarframkvæmdir, má vera að þér verði boðið að sitja námskeið. Þú getur þegið boðið, neitað því eða afþakkað það áður en námskeiðið hefst. Ef þú þiggur boðið munu leiðbeinendur á námskeiðinu halda skrá um mætingu þína, meta hvaða markmiðum þú náðir með því að sækja námskeiðið og gefa athugasemdir þar að lútandi. Þeir sem skipuleggja námskeið og leiðbeina á þeim hafa einnig aðgang að þeim upplýsingum um færni þína sem þú bættir við kenniskrána á hub.ps8318.com. Til að vinna úr upplýsingunum frá þér má deila þeim með annarri deildarskrifstofu Votta Jehóva, aðalstöðvum Votta Jehóva eða sambærilegum aðilum sem Vottar Jehóva nota í ýmsum löndum.

Frjáls framlög. Þegar þú notar vefsetur okkar til að gefa framlag geymum við nafn þitt og samskiptaupplýsingar. Til að annast rafrænar millifærslur af framlögum þegar kreditkort eru notuð höfum við valið viðurkennda þjónustuaðila með öryggistækni og persónuverndarstefnu á heimsmælikvarða. Við sendum nauðsynlegar fjármálaupplýsingar eins og kreditkortanúmer eða reikningsnúmer til þessara þjónustuaðila. Við meðhöndlum framlög þín í samræmi við Payment Card Industry Data Security Standard (PCI DSS). Viðtakandi framlaganna heldur skrá yfir millifærslur í að minnsta kosti tíu ár. Skráð er dagsetning millifærslunnar, upphæð framlaganna og hvernig þau bárust. Það hjálpar okkur að halda bókhald í samræmi við lög og svara spurningum sem þú kannt að hafa á tímabilinu. Við höfum ekki samband við þig til að biðja um frekari framlög.

Beiðni um heimsókn. Þú getur líka beðið um að vottur Jehóva heimsæki þig til að fræða þig nánar um Biblíuna eða Votta Jehóva. Við notum persónuupplýsingar, sem þú lætur okkur í té með þessum hætti, aðeins til að annast beiðni þína. Þegar þú staðfestir beiðnina má vera að persónuupplýsingar þínar séu sendar til annarra deildarskrifstofa eða félaga á vegum Votta Jehóva, en aðeins ef það er nauðsynlegt til að annast beiðnina.

Í öðrum tilgangi en þeim sem er lýst að ofan. Þú lætur okkur ef til vill í té persónuupplýsingar (eins og nafn, póstfang og símanúmer) í öðrum tilgangi en að stofna notandareikning eða senda inn umsókn eða frjáls framlög. Í slíku tilfelli ertu alltaf látinn vita hver ástæðan er fyrir að biðja þig um að veita okkur upplýsingar. Við notum aldrei upplýsingar þínar í öðrum tilgangi en þeim sem þú varst látinn vita af þegar þú lést þær í té.

MEÐFERÐ PERSÓNUUPPLÝSINGA Í JW LIBRARY

Meðferð persónuupplýsinga í JW Library er lýst á síðunni How JW Library Uses Your Data.

Eins og fram kemur á þeirri síðu sækir appið gögn á vefsetrið jw.org. Vefsetrið hefur aðgang að IP-tölu notandans meðan á niðurhalinu stendur. Vefsetrið safnar gögnum í þeim tilgangi að veita þjónustu sem appið býður upp á, bæta þjónustuna í appinu og tryggja öruggt umhverfi. Nánar tiltekið er um að ræða: að gera notandanum kleift að nálgast appið og keyra það, að stjórna virkni appsins og bæta það, að hindra eða koma auga á svindl- eða spilliforrit og að bregðast við atvikum þar sem öryggi er ógnað.

ÞEGAR GÖGN ERU SEND TIL ÚTLANDA

Trúfélagið starfar um heim allan og notar til þess ýmsa svæðisbundna lögaðila. Sumir af netþjónum þessa vefseturs og tengdra forrita eru hýstir í Bandaríkjunum. Vera má að við sendum persónuupplýsingar þínar úr því landi sem þú býrð í, hugsanlega til landa þar sem lög um gagnavernd veita ekki sömu vernd og í landinu þar sem þú býrð núna. Við gerum ráðstafanir til að vernda gögnin þín þegar við meðhöndlum og sendum þau. Við væntum þess að allir sem starfa fyrir og styðja Votta Jehóva fylgi stefnu okkar varðandi persónuvernd og gildandi lögum og reglum þar að lútandi.

Þegar þú notar þetta vefsetur og átt í rafrænum samskiptum við okkur samþykkir þú um leið slíkar sendingar gagna milli landa. Í mörgum tilfellum gerum við samkomulag vegna slíkra sendinga, til dæmis með hefðbundnum samningsákvæðum.

RÉTTINDI ÞÍN

Þegar við meðhöndlum persónuupplýsingar gerum við eðlilegar ráðstafanir til að tryggja að gögnin þín haldist óbreytt og séu uppfærð til að þjóna tilgangi þess að þau voru geymd. Réttindi þín varðandi persónuupplýsingar, sem þú hefur látið okkur í té, eru undir því komin í hvaða landi þú býrð og gildandi lögum. Réttindi þín gætu verið:

  • Að biðja um upplýsingar um hvernig persónuupplýsingar eru geymdar og notaðar í samræmi við gildandi lög á staðnum.

  • Að biðja um að fá aðgang að persónuupplýsingum þínum, eyða þeim eða loka fyrir þær, eða leiðrétta þær ef þær eru ófullnægjandi eða ónákvæmar.

  • Að mótmæla meðhöndlun persónuupplýsinga þinna og biðja okkur um að hætta að vinna þær ef þú hefur réttmætar ástæður til að gera það.

Ef lög um gagnavernd í landinu þar sem þú býrð eiga við og þú vilt fá aðgang að persónuupplýsingum þínum, leiðrétta þær eða eyða þeim, geturðu fundið samskiptaupplýsingar á síðunni Fulltrúar persónuverndar.

Þegar við fáum skriflega beiðni þína og eftir að þú hefur sýnt nægilega vel fram á hver þú ert og gefið okkur nægar upplýsingar til að tengja persónuupplýsingarnar við þig, metur viðeigandi ábyrgðaraðili vandlega hvort verða eigi við beiðninni. Hann gerir það með því að vega og meta annars vegar hagsmuni þess sem vill fá aðgang að persónuupplýsingum sínum, leiðrétta þær eða eyða, og hins vegar lögmæta hagsmuni safnaðarins, eins og til dæmis hvort það myndi ógna trúfrelsi safnaðarins að verða við beiðninni. Við látum þriðju aðila, ef einhverjir eru, vita af nauðsynlegum breytingum.

Veittu því eftirtekt að ekki má eyða gögnum þínum ef meðhöndlun þeirra er lögboðin eða nauðsynlegt er að geyma þær af öðrum lögmætum ástæðum. Trúfélagið vill til dæmis geyma varanlega gögn um stöðu votta Jehóva sem einstaklinga. Að eyða slíkum gögnum bryti í bága við trúarstefnu safnaðarins og venjur. Þegar beiðni um að eyða persónuupplýsingum er annars vegar förum við eftir gildandi lögum varðandi tilkynningu og geymslu gagna. Þú getur líka lagt inn kæru varðandi meðhöndlun þeirra gagna, sem þú hefur látið okkur í té á þessu vefsetri, hjá fulltrúa gagnaverndar á vegum yfirvalda þar sem þú býrð.