Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

ÞJÁLFUNARLIÐUR 5

Nákvæmni í lestri

Nákvæmni í lestri

1. Tímóteusarbréf 4:13

YFIRLIT: Lestu upphátt það sem stendur á blaðsíðunni.

HVERNIG FER MAÐUR AÐ?

  • Undirbúðu þig vel. Íhugaðu hvers vegna kaflinn var skrifaður. Æfðu þig í að lesa orðasambönd en ekki bara stök orð. Gættu þess að sleppa ekki, bæta ekki við eða skipta út orðum. Taktu mið af öllum greinarmerkjum.

  • Berðu hvert orð rétt fram. Ef þú veist ekki hvernig á að bera eitthvert orð fram skaltu fletta því upp í orðabók, hlusta á hljóðskrá með upplestri ritsins eða biðja einhvern sem les vel um aðstoð.

  • Talaðu skýrt og greinilega. Vandaðu framburðinn, réttu vel úr þér og opnaðu vel munninn. Leitastu við að bera fram hvern einasta sérhljóða.