Postulasagan 3:1–26

  • Pétur læknar lamaðan betlara (1–10)

  • Ræða Péturs í súlnagöngum Salómons (11–26)

    • „Allt verður endurreist“ (21)

    • Spámaður eins og Móse (22)

3  Pétur og Jóhannes voru nú á leið upp í musterið til bænastundarinnar sem var um níundu stund*  og þá var verið að bera þangað mann sem hafði verið lamaður frá fæðingu. Á hverjum degi var hann settur við musterishliðið sem var nefnt Fagrahlið svo að hann gæti beðið þá sem gengu inn í musterið um ölmusu.  Þegar hann sá Pétur og Jóhannes á leið inn í musterið bað hann þá um ölmusu.  En þeir horfðu beint á hann og Pétur sagði: „Líttu á okkur.“  Hann leit á þá með eftirvæntingu og bjóst við að fá eitthvað hjá þeim.  En Pétur sagði: „Silfur og gull á ég ekki en það sem ég hef gef ég þér. Í nafni Jesú Krists frá Nasaret: Gakktu!“  Síðan tók hann í hægri hönd hans og reisti hann upp. Samstundis urðu fætur hans og ökklar styrkir.  Hann spratt á fætur, tók að ganga og fór með þeim inn í musterið, gekk um, hoppaði og lofaði Guð.  Allt fólkið sá hann ganga um og lofa Guð. 10  Það áttaði sig á að þetta var maðurinn sem var vanur að sitja við Fagrahlið musterisins til að fá ölmusu og varð furðu lostið og himinlifandi yfir því sem hafði gerst. 11  Maðurinn hélt í Pétur og Jóhannes en fólkið var yfir sig undrandi og flykktist að þeim í súlnagöngum Salómons sem svo eru nefnd. 12  Þegar Pétur sá það sagði hann við fólkið: „Ísraelsmenn, af hverju eruð þið svona undrandi og af hverju starið þið á okkur eins og við hefðum af eigin mætti eða guðrækni gert honum kleift að ganga? 13  Guð Abrahams, Ísaks og Jakobs, Guð forfeðra okkar, hefur upphafið þjón sinn, Jesú, sem þið framselduð og afneituðuð frammi fyrir Pílatusi þó að hann hefði ákveðið að láta hann lausan. 14  Já, þið afneituðuð þessum heilaga og réttláta manni og báðuð um að fá morðingja lausan 15  en drápuð höfðingja lífsins. En Guð reisti hann upp frá dauðum og við erum vottar þess. 16  Í nafni Jesú og vegna þess að við trúum á nafn hans hefur þessi maður, sem þið sjáið og þekkið, fengið mátt í fæturna. Trúin sem við höfum vegna hans hefur gert þennan mann alheilan fyrir augum ykkar allra. 17  Nú veit ég, bræður, að þið gerðuð þetta í vanþekkingu og hið sama er að segja um leiðtoga ykkar. 18  En þannig lét Guð rætast það sem hann lét alla spámenn sína segja fyrir, það er að Kristur hans myndi þjást. 19  Iðrist því og snúið við til að syndir ykkar verði afmáðar. Þá koma tímar þar sem Jehóva* veitir nýjan kraft 20  og sendir Krist sem er útvalinn handa ykkur, það er að segja Jesú. 21  Himinninn á að geyma hann til þess tíma þegar allt verður endurreist sem Guð lét heilaga spámenn sína boða forðum daga. 22  Móse sagði: ‚Jehóva* Guð ykkar mun velja handa ykkur spámann eins og mig úr hópi bræðra ykkar. Þið skuluð hlusta á allt sem hann segir ykkur. 23  Hver* sem hlustar ekki á þennan spámann verður upprættur úr þjóð Guðs.‘ 24  Allir spámennirnir, Samúel og þeir sem komu á eftir honum, allir sem hafa spáð, hafa líka kunngert þessa daga. 25  Þið eruð synir spámannanna og sáttmálans sem Guð gerði við forfeður ykkar þegar hann sagði við Abraham: ‚Af afkomanda þínum munu allar ættir jarðar hljóta blessun.‘ 26  Guð sendi þjón sinn fyrst til ykkar, eftir að hafa kallað hann, til að blessa ykkur og snúa hverjum og einum ykkar frá vondum verkum.“

Neðanmáls

Það er, um kl. 15.
Sjá orðaskýringar.
Sjá orðaskýringar.
Eða „Sérhver sál“.